Matarskammtur 4-5
Tími 60-90 mínútur
Erfiðleikastig Miðlungs
Þjóðarréttur spánverja.
Hráefni
- 2 msk extra virgin ólifiolíu.
- 1 stk rauðlaukur.
- 4 stk hvítlauksrif.
- 4 stk tómatar, grófsaxaðir.
- 1/2 tsk safran þræðir.
- 1 bolli Basmati hrísgrjón.
- 11 gr kjúklingakraftur „Oscar“.
- 1 1/2 bolli vatn.
- 1 tsk salt.
- 1 tsk nýmulin pipar.
- 170 gr smálúðuflök.
- 150 gr rækjur.
- 20 stk kræklinga (má vera í dós).
- 1/2 bolli ferskar grænar baunir.
- 1/4 bolli söxuð fersk steinselja.
Matreiðsla
- Hitið ofninn í 200°c. Hitið olíuna í pönnu sem má fara inní ofn, steikið hvítlaukinn, laukinn en ekki brúna eða u.þ.b. 3 mínútur, setjið þá tómatana og safranið útí og steikið til viðbóta í ca. 2 mínútur.
- Látið suðuna koma upp á vatninu og hrærið kjúklingakraftinum vel saman við.
- Hrærið hrísgrjónunum saman og hellið kjúklinasoðinu útí, kryddið með salt og pipar, færið pönnunna ínní ofn og bakið í ca. 35 mínútur eða þangað til að hrísgrjóninn eru orðin mjúk. Á meðan hrísgrjóninn eru að eldast þá skerið smálúðuna í bita og þrífið kræklingana.
- Setjið kræklingana, smálúðubitana, rækjurnar og kryddið með salt og pipar og bakið í ca. 15mínútur í viðbót.
- Þegar Sjávarréttar-Paella er tilbúinn þá dreifið steinseljunni yfir og berið fram strax.
Facebook Comments