Vinningshafar í tengslum við desember fréttabréf voru:
Við drógum fimm vinningshafa sá fyrsti var Halldór Guðnason sem hlýtur jólaveislu fyrir tvo á hinn afar góða veitingastað Forréttabarinn og líka Visitorsguide bók frá okkur um Bali.
Númer tvö sem er Diljá Kristjánsdóttir sem fékk 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastaðinn Jörgensen á Centerhotel við Hlemm. Númer þrjú Birgitta Ósk Rúnarsdóttir fær gjafabréf fyrir hádegisverð fyrir tvo á Matarkjallarann.
Fjórði vinningshafinn sem fær gjafabréf í verslun er tilkynntur á Facebook síðu Veitingastadir.is.
Fimmti vinningshafinn er tilkynntur á Facebook ferðasíðu okkar Visitorsguide Travel.
Við óskum vinningshöfum til hamingju og vinninga ber að vitja fyrir áramót.
Covid – Heimsendingartilboð og Tilboð á stöðum og JÓLIN
Veitingamenn og viðskiptavinir okkar sbr. neðangreindir hafa gert miklar ráðstafanir vegna veirunnar með tilliti til þess að snætt sé á staðnum auk heimsendinga.
– Sjá árlegt yfirlit hér um JÓLASEÐLAR
Nær allir eru með sækja á staðinn og TAKE-AWAY TILBOÐ. Við hvetjum fólk til að styðja veitingamenn, starfsmenn á veitingastöðum etc. og fara á staði en gæta auðvitað varúðar – eða sækja mat eða fá heimsent (sjá fjölda tilboða hér að neðan).
Margir neðangreindir staðir svo sem Kol, Forréttabarinn, Fiskifélagið og Nauthóll eru með 2, 3 eða jafnvel 4 rými sem hvert taka 15 manns rými – og geta því tekið allt að 30 til 60 manns alls. Ef farið á staðina er líka upplagt að taka kvöldið snemma og mæta fyrir kl. 18, jafnvel nær kl. 17 og njóta þá líka hamingjustunda sem eru víða í boði. Nú eða fara á staðinn og ná í mat eða fá heimsent. Í október og nóvember bættum við, við upplýsingum varðandi tilboð í heimsendingum eða þegar sótt er á staðinn. Þetta uppfærum við eftir föngum eftir því sem að tími og efni gefst. Það væri afar vel þegið ef þú deilir þessari frétt okkar – sem finnst reyndar afar vel á leitarvélum, – hjá þér á Facebook veggnum þínum :), með fyrirfram þökk.
Matur og gisting
Á haustin eru enn betri tilboð á hótelum en að sumri til og víða góð tilboð fyrir mat og gistingu. Þar má fyrst nefna viðskiptavin okkar til fjölda ára, Hótel Örk, Hveragerði – sjá neðar nánari upplýsingar. Undirritaður hefur í gegnum tíðina leyft sér þann munað að fara af og til útúr bænum til að skipta um umhverfi, slaka á, og skapa minningar og reyndar (kannski of) oft vinna og skrifa um staði og ámóta í leiðinni. Verð fyrir gistingu og mat eru oft mun lægri en fólk ímyndar sér og ég segi oft að það standist samanburð við flest vestræn ríki – sé ferðast utan háannar. Samanburður íslenskra veitingamanna við þá erlendu varðandi gæði, – eftir ferðalög mín til 60 landa segi ég líka tvímælalaust að sé í heildina okkar mönnum í hag (Sjá VisitorsguideTravel á Facebook fyrir ferðasögur og myndbönd meðal annars frá Bali og Indónesiu).
Áberandi er í ár með tilboð á veitingastöðum að algengast er að í boði sé nautakjöt og þá oftast nautalund og hinsvegar þorskur. Við höfum því lagt okkur fram við að prófa þessa rétti á sem flestum stöðum sem við höfum prófað í sumar og haust og getum því notað samanburðinn „miðað við landsmeðaltal“. Almennt má segja um þessa tvo rétti að það á varla að vera hægt að klikka á matreiðslu þeirra með góðu hráefni.
Í vetur eru mjög góð tilboð hjá mörgum stærri og betri veitingastöðum og hótelum, sem eru skráð á Veitingastadir.is, í svokallaða Markaðspakka. Þetta eru okkar aðal viðskiptavinir (um 20 talsins) sem eru með meira en einfaldar grunnskráningar, sem flestir eru með.
Á flestum stöðum skráðum á síðuna er hægt að nota Ferðaávísunina. Helstu vetrar tilboðin, sem við höfum uppfært frá september-október eru:
– Fiskfélagið, Grófinni
– Flottar veislur eru í boði hjá þeim svo sem 3ja rétta Fiskiveisla (kr. 6.500), sem við prófuðum byrjun nóvember. Sú fær dóminn að vera feykilega góð!, ekki oft sem maður notar slíkt lýsingarorð. Humarsúpan var mun betri en gengur og gerist, 3 tegundir af fiski var frábær og laust við of mikla sósu með auka-efnum sem sumir staðir nota. Kom mér ekki á óvart að það var kven kokkur við stjórnvölinn (pönnuna þetta kvöld). Þjónusta tveggja ungmeyja var frammúrskarandi sem og allar Covid varnir á staðnum til fyrirmyndar. Tveir gestir á næsta borði sem völdu sér Sælkeraveislu voru líka mjög ánægðir. Ýmiss önnur tilboð eru í gangi svo sem frábært tilboð í sushi til að taka með heim („best buy“).
-Fiskfélagið býður að auki úrval drykkja á tilboðsverði og 25% afslátt af matseðli sé pantað milli 17:00 – 18:30 alla daga út nóvember.
– Jörgensen, við Hlemm (yes this info is in English).
A great lunch offer, a) Lunch menu course, b) admission to Miðgarður Spa and a c) glass of sparkling wine for only 4.990 kr. per person.
Weekend same offer as a Brunch, same price, but with a glass of Mimosa.
Two for one daily of lunch (which we have often tried) and highly recommend, not least the fish of the day!, also good service there and really nice staff.
— 15% off, take away order daily after 17.00.
– Tapasbarinn
Eðal viðskiptavinur okkar til 20 ára (að meðtöldum árunum sem við gáfum út Visitor’s Guide bókina) sem átti einmitt 20 ára afmæli í október. Tapasbarinn er í eigu frækinna félaga frá Portúgal, Nuno og Bento sem reka fjóra aðra vinsæla staði.
— Góð tilboð í take away eða frá um kr. 2.900 kr. á mann fyrir veglegar veislur eins og Tapas mönnum er lagið.
– KOL, ofarlega á Skólavörðustíg
Býður meðal annars glæsilegan þriggja rétta tilboðsmatseðil svokallaðan leikhús og tónleikaseðill á kr. 5.990. Þetta er fyrir þá sem kjósa að koma snemma eða um eða fyrir klukkan 18, þar sem ætlast er til þess að viðskiptavinir ljúki máltíð fyrir klukkan 20. Þetta er upplagt þar sem það er hollara fyrir líkamann að vera búið að borða fyrir þann tíma. Val er í aðalrétt um kolaðann lax eða nautalund. Nautalundina prófaði undirritaður í september og sú var með þeim betri í bænum. Ekki gleyma að biðja um hana þar eða annarsstaðar sem þú kannt að snæða steikta eins og þú vilt hafa hana, „medium rare“ er algengasta óskin. Nauta carpaccio er í forrétt og í eftirrétt er boðið uppá, deluxe ostaköku. Við skrifuðum um þennan seðil á Facebook í ágúst, sem fékk mjög góða dóma hjá okkur. Þess má geta KOL er einnig með brunch um helgar frá kl. 12-15.
— 20% afsláttur af take away og heimsendingum frá miðvikudegi til sunnudags, sértilboð á heimsendingum í samvinnu við BSR.
– Sjávargrillið, Skólavörðustíg
Býður afar veglegt þriggja rétta Haust tilboð með fordrykk á kr. 6.990. Í hausttilboðinu er val á milli tveggja forrétta og sem aðalrétt annað hvort grilluð nautalund eða pönnusteiktur saltfiskur. Í forrétt getur þú meðal annars fengið nauta carpaccio. Við höfum ekki prófað þennan seðil allann, en forréttinn brögðuðum við á dögunum. Hann var afar góður og langt, langt yfir landsmeðaltali carpaccioa og að auki óvenju vel úti látin – sem og flestir réttirnir á staðnum. Við mælum með að biðja um svartann pipar sem gerir réttinn betri og jafnvel smá olíu.
Eftir rétturinn er Cremé bulé sem stendur alltaf fyrir sínu, þó það sé ekki minn tebolli og telji að almennt mættu allir veitingamenn minnka sykur í þeim rétti og fleirum um amk. 35%. Nautalundina á Sjávargrillinu prófaði ég um daginn og varð fyrir ákveðnum vonbrigðum með hana. Gæði hráefnis var ábótavant sem og eldamennsku 🙁 og ekki var spurt hvernig vildi hana matreidda.
— 20% afsláttur af ala carte í heimsendingu eða sótt. Haust tilboðið ef sótt kr. 5.990 (-1.000 kr.). Litla veislan í heimsendingu með léttum réttum og humar ívafi fyrir 4 að lágmarki aðeins kr. 9.900. Sushi veisla 30 stk. á 7.990 (dugir fyrir 2-3).
– Nauthóll, Nauthólsvík
Býður þriggja rétta Sælkeraveislu á kr. 6.990. Val er milli tveggja forrétta, og sem aðalrétt annað hvort grillaða lamba T-bone steik eða pönnusteiktan þorskhnakka. Sjá umfjöllun og myndir hjá okkur á Facebook um heimsókn þangað. Það er skemmst frá því að segja að unglingsdóttir mín kallaði nautalundina „geðveika“ og sagði að hún væri sú besta sem hún hefði smakkað. Hún vildi lundina vel steikta meðan ég er „medium rare“ maður. Þjónusta veitingastjórans var sérstaklega góð.
Nautalundin á Nauthól í þetta skiptið og KOL í september eru þær bestu sem hafði fengið á árinu en piparsteikin á Matarkjallaranum skaust svo uppá stjörnuhimininn í október sjá hér að neðan.
– Matarkjallarinn, Aðalstræti
Fordrykkur fylgir með hverri innleystri ferðagjöf. Það er einstaklega gott verð í hádeginu á staðnum, sé tekið mið af gæði matar og þjónustu eða frá aðeins um 2.000 kr. og fiskur dagsins er á 2.490 kr. Ekki nóg með þetta heldur er þriggja rétta rétta Steikarveisla á staðnum með piparsteik sem aðalrétt á og humarsúpa sem forrétt á aðeins kr. 5.990 (fullt verð er yfir kr. 10.000). Veislan var prófuð 22. október af okkur fjórum saman og skemmst að segja að hún sló algerlega í gegn hjá okkur. Humarsúpan „fjölbreytt“ og yfir landsmeðaltali, en piparsteikin var algerlega frábær, skammturinn líka mjög stór og meðlæti gott. Eftirrétturinn var hefðbundið og meðalgóður – ég reyndar lítill eftir réttarmaður. Þetta er einn allra besti staður landsins og þó víðar væri leitað. Þjónusta tveggja stúlka var lipur og góð, einkum þegar leið á kvöldið. Eina sem má bæta þar er að á stað af þessum klassa mættu þjónar skenkja meira í glös, vatn og vín og hafa meiri vínþekkingu, við mælum með víni frá Chile með veislunni. Þessi seðill með notkun á ferðaávísun með fordrykk – og 1.000 krónur eytt að auki, er eitt allra „best buy“ á landinu og þess vegna í norður-Evrópu. Fyrir kl. 19 er hamingjustund á staðnum.
— 25% afsláttur er af heimtöku kvöldmatseðli ef sótt á staðinn. Frí heimsending ef keypt fyrir meira en 7.500 kr.
– Forréttabarinn, Mýrargötu
Opnaði í lok júlí eftir gagngerar og vel heppnaðar endurbætur :). Þar er meðal annars boðið uppá vel úti látin fjögurra rétta tilboð / veislur, frá aðeins kr. 5.500 á mann og upp í kr. 6.950. Sjá nýlega umfjöllun okkar á Facebook um eina slíka, þar sem við deildum þrjú tveimur slíkum veislum sem gerði um 4.500 kr. á mann, sem telst gott verð, fyrir fullann maga. Þetta er gott virði fyrir peninginn (ekki síst á laugardagskvöldi), enda telur undirritaður það eitt einkennismerki staðarins. Eitthvað sem hagfræðingurinn kann að meta og það og fleira gerir þetta að einum að uppáhaldsstað mínum.
— 25% afsláttur í take away, af minni seðli sem er í gangi þessa dagana á staðnum eftir síðasta Covid útspil. Það er opið frá kl. 16 til 21.
Úti á landi:
–Hótel Örk – Hver veitingastaður, Hveragerði – frábært tilboð
Gisting fyrir tvo frá aðeins kr. 12.900, með morgunverðarhlaðborði. Einnig fylgir:
-endurgjaldslaus aðgangur að stórri sundlaug,
-hvera gufubað og tveimur góðum pottum,
-afþreyingarherbergi (borðtennis, pool borð, pílukasti, o.fl.!.).
Sami pakki fyrir tvo, þar sem að auki er innifalinn þriggja rétta kvöldverður á Hver, kostar frá aðeins 19.900 virka daga en kr. 29.900 föstudaga og laugardaga. Það er líka hægt að kaupa pakka með afþreyingar ferðum, inniföldum. Sjá nánar um það á vef hótelsins. Við hjá Veitingastadir.is, sem þykjum kröfuhörð-harðir, höfum oft gist á hótelinu og getum heilshugar mælt með því – og þessum afar góða þriggja rétta seðli, þar sem þú getur valið á milli allra rétta á matseðli. Við höfum prófað þá flesta og hægt að mæla með þeim. Þetta er ekki síst vegna almenns góðs viðmóts starfsfólksins og þjónustu bæði á hótelinu og veitingastaðnum. Stöku starfsmenn svo sem í herbergisþrifum mættu þó vera glaðlegri og líflegri þar með talið að bjóða góðan daginn.
–Fjöruborðið á Stokkseyri
Rómaður staður sem býður uppá flotta þriggja rétta haustveislu með 300 gr. humri í aðalrétt á kr. 7.900. (fullt verð er 10.540). Þetta gildir miðvikudags, fimmtudags og föstudagskvöld en opið er frá kl. 16-21. Það er lokað á mánudögum og þriðjudögum núna en um helgar opnar klukkan 12. Ólyginn sagði að maður fái hvergi betri humar en á Fjöruborðinu. Sjá mynd og smá umfjöllun á Facebook í Suðurlandsferð í september.
— 30% afsláttur er af öllum sóttum pöntunum í vetur (gildir þó ekki af tilboðum).
-Gistihúsið Egilsstaðir
Gott tilboð fyrir tvo eða krónur 26.900, gisting fyrir tvo, tveggja rétta máltíð á veitingastað hótelsins, morgunverður og að auki aðgangur að spa. Við höfum prófað þetta hótel og getum algerlega hikstalaust mælt með því. Fallegt, hreint, góður matur og þjónusta, talsvert betri en flest hótel úti á landi. Ath. þó að hótelið hefur lokað í vetur og til 1. maí.
Í þessu samhengi viljum við líka benda þeim sem vilja fara út fyrir borgina á nýlega umfjöllun á Facebook um gistingu og mat á Icelandair Flúðum, gistiheimili á Flúðum og hótel Selfossi. Þeir tveir fyrrnefndu skoruðu afar hátt fyrir gistinguna en hótel Selfoss mun lægra, en maturinn þar var þó afbragð.
-Flugfélagið Ernir, samstarfsaðili okkar til fjölda ára, sbr. banner á forsíðu er með 40% Loftbrú afslátt fyrir íbúa landsbyggðarinnar frá áfangastöðum sínum – sjá www.ernir.is
– Sjá einnig frétt um Akureyri á Facebook hjá okkur frá í sumar, en þar og í næsta nágrenni eru 24 staðir skráðir á síðuna okkar – sjá lista HÉR:
Á FACEBOOK erum við líka með fleiri fréttir og umfjallanir um ferðir út á land bæði í sumar og haust svo sem Selfoss og uppsveitir um miðjan september og í sumar Akureyri og Norðurlandi, og Suðurland og Vesturland-Borgarfjörðinn. Fréttir sem geta gefið þér hugmyndir um staði til að heimsækja nú í haust sem að sumri til.
Sjá einnig frétt neðar á síðunni um Tilboð í hádeginu en þá er oft hægt að gera mjög „góð kaup“. ATHUGIÐ þó að eins og sakir standa er misjafnt hvort staðir séu opnir eður ei.
Ábyrgðarmaður og aðalskrifari Hákon Þór Sindrason,
Viðskiptafræðingur – Rekstrarhagfr. – Ráðgjafi
Framkvæmdastjóri NETID ráðgjöf og Veitingastadir.is