Nýir veitingastaðir í Reykjavík t.d. Lóla og Skreið
Nokkrir nýir staðir opnuðu í fyrra auk fleiri frétta. Nýjasti staðurinn í bænum sem opnaði í byrjun maí er Lóla, sem er til húsa í Hafnarhvoli að Tryggvagötu 11 þar sem veitingastaðurinn Anna Jóna var áður til húsa. Listakokkurinn, Siggi Lauf, sem áður rak Oto opnaði staðinn.