Matarskammtur 20
Tími 5 klst
Erfiðleikastig Miðlungs
Marglaga, margbragða „Jello“ brjálæði; byggt á uppskrift frá Kraft.
Regnboga-„Jello“
Það tekur u.þ.b. fimm klukkustundir að útbúa þann rétt. Mestur tíminn fer reyndar í bið. Af þeirri ástæðu er gott að vera búinn að undirbúa aðrar athafnir með matargerðinni. Einnig er tilvalið að bjóða vini í heimsókn og gera sér glaðan dag í „Jello“-gerð. Uppskriftin gefur af sér 10 laga hlunk, gagnsæjan og ógagnsæjan til skiptis (sýrði rjóminn og jógúrtið er notað til að gera „Jello“-ið ógagnsætt og finnst ekki bragð af því í „Jello“-inu“).
Hráefni
Hráefnunum er skipt milli lagana í réttinum:
- 6 1/4 bolli sjóðandi vatn.
- 5 (eða fleiri) pakkar af „Jello gelantine“ (4 matarskammtar hver í mismunandi brögðum og litum).
- 1 bolli sýrður rjómi eða óbragðbætt/vanillu jógúrt.
Matreiðsla
Veldu eitt eða fleiri ílát. Magnið verður allt í allt u.þ.b. átta bollar. Hægt er að nota t.d. hringform eða Pyrex-form (eins og á mynd). Best er að nota ílát sem er að lágmarki 10 cm djúpt, fyrir tíu 1 cm þykk lög.
- Hrærðu 1 1/4 bolla af sjóðandi vatni saman við 1 pakka af gelatin dufti í tvær mínútur, þar til duftið er blandað vatninu.
- Helltu 3/4 bolla af blöndunni í form.
- Kældu í ískap í 15 mínútur. „Jello“-ið á að vera föstu formi en ekki orðið stinnt, þannig að festist við fingurinn á þér þegar þú potar í það (lögin eiga að festast saman, ekki blandast).
- Kældu næsta lag í 5 mínútur, eða þangað til það hefur þykknað örlítið (u.þ.b. eins þykkt og óhrærð eggjahvíta).
- Blandað 3 matskeiðum af sýrðum rjóma rólega saman við þykknaða „Jello“-ið.
- Helltu blandaða „Jello“-inu varlega ofan á fyrra lagið.
- Kældu lagskipta „Jello“-ið í 15 mínútur í viðbót.
Endurtaktu skrefin sjö fyrir hvert lag. Kæla þarf vel milli laga til að koma í veg fyrir bráðnun og samruna. Eftir að öllum lögum hefur verið bætt við þá skal kæla í u.þ.b. 2 tíma, eða þangað til að „Jello“-ið er orðið stinnt. Eftir það skal setja plastfilmu eða álpappír yfir „Jello“-ið ef það á að geymast í ísskáp. Þegar „Jello“-ið er borið fram er flottast að skera þvert á réttinn til að ná öllum litum regnbogans í eina sneið. Verði ykkur að góðu!