Matarskammtur 12
Tími 2 klst.
Erfiðleikastig Miðlungs
Hráefni
- 2 1/4 bolli hveiti.
- 1/2 bolli kakó.
- 1 1/2 tsk matarsódi.
- 1 tsk salt.
- 100 g smjör.
- 1 bolli sykur.
- 1 tsk vanilludropar.
- 3 eggjarauður.
- 1 1/3 bolli kalt vatn.
- 3 eggjahvítur.
- 3/4 bolli sykur.
Matreiðsla
- Hitið ofninn í 175°C.
- Hrærið smjör og sykur þar til hræran verður létt og ljós.
- Bætið eggjarauðunum í einni í senn og hrærið vel á milli.
- Bætið dropunum í.
- Blandið saman hveiti, kakói, matarsóda og salti og bætið í smjörhræruna til skiptis við vatnið.
- Þeytið hvíturnar, bætið 3/4 bolla af sykri í og stífþeytið.
- Blandið varlega í hræruna með sleikju.
- Setjið í smurt og hveitistráð klemmuform, 24 cm í þvermál, og bakið í u.þ.b. 60 mín. Kælið.
- Takið úr forminu og kljúfið í tvennt. Kakan á að vera blaut.
- Setjið krem á milli og súkkulaðihjúp ofan á.
Krem
Hráefni
- 100 g síríus suðusúkkulaði.
- 125 g mjúkt smjör.
- 2 eggjarauður.
- 75 g flórsykur.
Matreiðsla
- Bræðið suðusúkkulaðið yfir vatnsbaði og kælið.
- Hærið smjörið þar til það verður létt og loftkennt (u.þ.b. 10 mín).
- Bætið eggjarauðunum í, einni í einu og hrærið vel í á milli. Bætið sykrinum út í. Hrærið í u.þ.b. 5 mín. Hærið súkkulaðið saman við smjörkremið. Ef súkkulaðið er of heitt bráðnar smjörið og kremið eyðileggst.
Súkkulaðihjúpur
Hráefni
- 100-200 g síríus suðusúkkulaði.
Aðferð
- Bræðið suðusukkulaðið yfir vatnsbaði og kælið örlítið (samt ekki of mikið það verður að vera aðeins volgt).
- Súkkulaðið smurt ofan og utan á kökuna með sleikju.
Facebook Comments