Matarskammtur 4
Tími 1 klst.
Erfiðleikastig Auðvelt
Stórkostlegur steiktur kjúklingur
Hráefni
- 300 g sellerírót.
- 300 g kartöflur.
- 125 g smjör.
- 4 msk ólífuolía.
- 6 stk heilar tímíangreinar.
- 5 stk sneiðar parmaskinka (má nota beikon).
- 1 stk hvítlauksrif.
- 1 stk hvítlaukur.
- 1 stk sítróna.
- 1 stk stór kjúklingur.
- ½ stk búnt tímían.
- Salt og nýmalaður svartur pipar.
Matreiðsla
- Saxið hvítlauksrifið, skerið parmaskinkuna (beikonið) í litla bita, flysjið þetta gula af sítrónunni og saxið. Rífið timíanið af stilkunum og saxið. Blandið þessu öllu saman í skál og kreistið smjörið saman við. Saltið og piprið.
- Losið varlega um bringuhúðina á kjúklingnum, passið að hún rifni ekki.
- Komið meirihluta kryddsmjörsins undir húðina og jafnið því á bringuna.
- Skerið í lærin niður að beini tvo skurði, ef vill. Þannig verður kjötið mjög mikið eldað á þessu svæði og mjög ljúffengt að margra mati. Nuddið kryddsmjöri í skurðina og á lærin.
- Sneiðið sítrónuna og komið sneiðunum fyrir í kviðarholinu.
- Skerið sellerírótina og kartöflurnar í bita. Blandið þeim saman í skál ásamt heilum hvítlauksrifum, timíangreinum og ólífuolíu. Saltið og piprið og komið þessu fyrir í kringum kjúklinginn í ofnskúffunni. Bætið endilega við fersku grænmeti s.s gulrótum, rófum o.þ.h.
- Steikið á 220°C í 40-45 mín. fyrir hvert kíló. Látið fuglinn standa í 10-15 mín. áður en hann er skorinn.
Facebook Comments