Matarskammtur 10
Tími 2 klst.
Erfiðleikastig Erfitt
Góð sjávarréttarsúpa, uppskriftin er í tveimur pörtum, fyrst fiskisoðið og svo sjálf súpan.Sjávarréttarsúpa
Fiskisoð
Hráefni
- 2 kg. Fiskibein.
- 8 L Vatn.
- 1 mtsk. Dill.
- 4 mtsk. Tómatpúrre.
- 3 mtsk. Grænmetiskraftur.
- 2 tsk. Hvítur Heill pipar.
- 3 stk. Lárviðarlauf.
- 1 stk. Laukur.
- 2 stilkar Sellerí.
- 2 stk. Steinseljustilkar.
- 2 stk Gulrætur.
Matreiðsla
- Fiskibeinin þrifin og snyrt, augun og tálknin tekin úr fiskinum.
- Öllu blandað saman í pott, gulrætur, sellerí og laukur skorið í fernt.
- Látið sjóða í 25 mín. og soranum fleytt af öðru hverju.
- Sigtað svo yfir í annan pott og þykkt með smjörbollu.
Sjávarréttarsúpa
Hráefni
- 5 L. Fisksoð.
- 2 mtsk. Grænmetiskraftur.
- 1 mtsk. Hvítlaukssmjör.
- 3 dl. Hvítvín.
- 4 dl. Rjómi.
- 150 gr Rækjur.
- 150 gr Hörpuskel.
- 150 gr Kræklingur.
- 150 gr Fiskur, skorin í bita (Getur verið lax, steinbítur, lúða, karfi, þorskur eða annars konar fiskur )
Matreiðsla
- Hellið fiskisoðinu í pott og setjið útí grænmetiskraft, hvítlaukssmjör og hvítvín.
- Leyfið suðunni að koma upp og öllu innihaldinu að leysast upp.
- Að lokum bætið rjóma útí og fiskinum 5 mín. áður en súpan er borin fram.
- Gott er að skreyta með smá þeyttum rjóma og saxaðri steinselju.
Facebook Comments