Reykjanes er góður staður að heimsækja og aðeins um 40 mín akstur frá höfuðborginni. Hvort sem skoðað er hið hrikalega jarðhitalandslag eða til að heimsækja brúna milli heimsálfa, Bláa Lónið eða Víkingasafnið. Við hjá veitingastadir.is fórum í ferð út á Reykjanesið til að dreifa, hitta viðskiptavini og skrifa um staði. Það er fjölbreytt úrval af veitingastöðum á svæðinu sem hægt er að mæla með. Hér má nefna staðina Kaffi Duus og Olsen Olsen í Reykjanesbæ. Einnig Salthúsið í Grindavík og Vitann í Sandgerði sem er með góða skráningu á vefsíðu okkar og býður meðal annars uppá krabbaveislu, þá er líka góð og heimilisleg sundlaug í Sandgerði.
Facebook Comments