Hér eru upplýsingar um opnunartíma nokkurra veitingastaða um páska, auk safna, o.fl. Almennt eru uppgefnir veitingastaðir opnir alla rauðu dagana að kvöldi til en margir einnig í hádeginu. Hér má nefna nokkra viðskiptavini okkar svo sem Apótekið*, Argentína steikhús, Sæta Svínið*, Sushi Social, Tapas barinn, Kol, Íslenska barinn* og veitingastaðina Ský* og Ísafold*. Stjörnumerktir staðir eru opnir í hádeginu auk kvölds.
Á Akureyri eru veitingastaðir almennt opnir hádegi og kvöld enda að venju mikið af ferðafólki í bænum um páskana.
Sundstaðir: Árbæjar-, Laugardals- og Vesturbæjarlaugin eru opnar alla rauðu dagana um páska, sama gildir um Akureyrarlaug. Við óskum lesendum okkar gleðilegra páska.
Facebook Comments