Veitingastaðurinn Ríó opnaði í byrjun janúar við Geirsgötu, gömlu höfnina þar sem áður var Mar. Veitingastaðurinn leitar á suður amerískar slóðir í mat og drykk svo sem Brasilíu, Argentínu og Perú. Veitingastaðurinn Staff Kitchen & Bar opnaði í desember á Laugavegi 74. Eigendurnir Daníel Örn og Snorri Grétar störfuðu báðir áður á veitingastaðnum Kol við Skólavörðustíg. Þá opnaði í desember veitingastaðurinn Salt kitchen and bar, við gömlu höfnina á Geirsgötu þar sem áður var Lobster and Stuff. Áherslan þar er á einkum á sjávarrétti. Veitngastaðurinn Reykjavík RÖST bistro var opnaður síðasta haust í verbúðarhúsun¬um við gömlu höfnina í Reykjavík. Flatey, opnaði nú í október úti á Granda í hlýlegum húsakynnum þar sem Texasborgarar voru áður til húsa. Staðurinn býður einkum uppá flatbökur og tilheyrandi og við höfum heyrt gott af staðnum látið. Veitingastaðurinn Rústik opnaði síðasta haust í Hafnarstræti þar sem áður var Uno. Mathöllin á Hlemmi opnaði í lok sumars eftir miklar endurbætur, þar bjóða tíu aðilar uppá mat og veitingar og tveir veitingastaðir bættust við í september. Meðal veitingastaða eru Jómfrúin, Bánh Mí með víetnamskar samlokur, Borðið úr Vesturbænum, mexíkóski Taco-staðurinn La Poblana, einnig Te og Kaffi o.fl. Veitingastaður Jamie Oliver opnaði í ágúst á hótel Borg. Í sumar opnaði nýtt hverfiskaffishús Prepp á Rauðarárstíg 6, þar sem mannlíf og listir blómstra. Þá er kominn nýr veitingastaður Nostra á annarri hæð í Kjörgarði við Laugarveg. Þá opnuðu tveir veitingastaður á jarðhæð ION hótelsins að Laugavegi 28, veitingastaðurinn Sumac. Sá staður sem er nýverið skráður á síðuna okkar er í norður afrískum anda og þar eru landsliðskokkar í forsvari. ATH. í færslum á Facebook er smá umsagir og myndir frá nokkrum þessara staða :).