Austurland og austfirðir ná yfir stórt svæði með fögrum fjörðum og tignarlegum fjöllum. Þar skoðuðum við nokkra staði og skráðum meðal annars Café Nielsen á Egilsstöðum í elsta húsi bæjarins þar sem boðið er uppá fjölbreyttann matseðil einkum sjávarrétti, þar sem við prófuðum ljómandi saltfisk eftir meðmæli ungrar og vinalegrar þjónustustúlku. Í bænum eru nokkrir veitingastaðir, fyrir er meðal annars skráður flottur staður Gistihúsið – Lake hótel Egilssstaðir. Á Eskifirði er flottur staður við sjóinn Randfulff sjóhús sem er gömul síldargeymsla og verbúð.
Á Neskaupsstað skráðum við inn hótel Capitano sem er einn af þremur veitingastöðum í bænum. Þar er boðið uppá pizzur, heimilismat í hádeginu og ala carte seðil. Það er bæði hestaleiga í nágrenni bæjarins og einnig í boði sigling frá bænum. Í Facebook færslu hjá okkur er nánari lýsing frá þessum stöðum og fleirum og myndir.