NÝIR OG NÝLEGIR VEITINGASTAÐIR
Uppfært maí ’26 (* = skráðir á vefinn)
Ein nýjasta viðbótin við veitingaflóruna er nýr gastropub sem heitir Dímon 11 og er á Laugavegi 11 (þar var áður Ítalia í fjölda ára). Staðurinn leggur áherslu á afslappað andrúmsloft og nútímalega matargerð á góðu verði. Aðaleigandinn er Tómas Kristjánsson, vanur framreiðslumaður sem síðast rak Nauthól í fjölda ára. Grandi restaurant & bar sem er í eigu Centerhotels keðjunnar opnaði í fyrra úti á Granda og er einn af fáum veitingastöðum í bænum í Vesturbænum. Þar var áður annar staður sem lokaði.
Torfan veitingastaður* opnaði á Amtmannsstíg í fyrra eftir að hafa verið lokaður í nokkur ár en lokaði því miður aftur í mars síðastliðnum.
Nýr aðili tók í fyrra við Nauthól* veitingastað, Haraldur Halldórsson, framleiðslumeistari og Sommelier, mjög vanur maður úr bransanum.
Í fyrra opnaði Skreið Laugavegi 4, en þar svífur yfir vötnum eða pönnum spænskur andi og baskneskur matur er í aðalhlutverki. Verð er skaplegt og opið er miðvikudags- til laugardagskvölds.
Í hitteð fyrra opnaði Indo-Italian* í Listhúsinu við Engjaveg þar ræður bæði indverks og ítölsk matargerð ríkjum. Verð er að auki heldur lægra en gengur og gerist í miðbænumsvo sem á Piccoolo, t.d. hádegishlaðborð virka daga á kr. 2.990.
Í fyrra opnaði OTO á Hverfisgötu þar sem áður var Yuzu, þar er áhersla á jap
anska og ítalska matreiðslu. Verðlauna matreiðslumaðurinn Sigurður Laufdal, sem hefur mikla reynslu frá stöðum innanlands og erlendis, var yfirkokkur en hefur nú róið á önnur mið og opnað nýjan staði í Tryggvagötu (þar sem Amma Jóna var áður).
Staðir sem hafa opnað síðastu 2 ár eða rúmlega það …
Nýr ítalskur staður á Hverfisgötuna, Grazie Trattoria, þar sem pizzur og ítölsk matseld er í öndvegi og opið er bæði hádegi og kvöld. Það hefur því talsvert bæst í ítölsku flóruna frá 2022-25.
Staðir hættir flestir í fyrra …
Torfan, Amtmannsstíg lokaði nú í mars.
Dass Reykjavík lokaði í fyrra eftir um 2ja ára rekstur.
Bankinn Bistro í Mosfellsbæ lokaði í október eftir nokkurra ára rekstur.
Staðurinn Ristorante Piccola lokaði í fyrra á Laugavegi 11, eftir stutta opnun (þar er nú Dímon).
Þá lokaði Kastrup á Hverfisgötu sökum skattaskulda og fór svo í gjaldþrot Kastrup hefur opnað aftur undir sama nafni en nýir eigendur meðal annars eigandi 101 hótels.
Sólon á Bankastræti lokaði vegna gjaldþrots.
Þá hættu Sono matseljur í Norræna húsinu í fyrra og einnig 2 Guys á Ægisíðu og hinn sögufrægi Súfistinn í Hafnarfirði hætti síðasta vetur.

Á Facebook síðu okkar þar sem vinir eru um 18.000, skrifum við um heimsóknir á staði og myndir. Meðal annars þá sem eru merktir með *, auk fleiri staða. Einnig birtum við stundum fréttir á veitinga- og ferðasíðu okkar meðal okkar um 10.000 fylgjenda á Instagram sjá hér:





