Fylling: (passar fyrir 2 epli sem er eftirréttur fyrir 4).
- 4 döðlur.
- 5 matsk. Frosið kókoskjöt (fæst hjá Filippseyjabúðinni eða sælkerabúð Nings).
- 4 saxaðar valhnetur.
- Pínulítið grænt kardimommuduft (Filippseyjabúðin og Nings selja grænar kardimommur í heilu, þarf að gera að dufti í morteli).
- 2 matsk. Hunang (gæða hunang).
Öllu blandað saman nema einni matskeið hunangi, hún er sett yfir fyllinguna eftir að eplið hefur verið fyllt.
Gat er gert á eplið og kjarninn tekinn úr. Fyllið eplið með fyllingunni, setjið ½ matsk. Af hunangi yfir fyllinguna. Bakið í ofni við 180 ° C í um 20 mínútur eða þar til eplið verður mjúkt. Eplin eru skorin í tvennt, hver eftirréttur er ½ epli borið fram með vanillu ís.
Uppskrift frá Indian Mango
Facebook Comments