Veitingastaðir.is
Menu
  • Skrá Veitingastað
  • Íslenska
  • English
  • Login
Menu
  • Heim
  • Fréttir og tilboð
  • Allir matsölustaðir
  • Umsagnir
  • Skrá Veitingastað
  • Uppskriftir
  • Um NETIÐ og Veitingastadir.is 
All Locations All Locations
Menu
  • Skrá Veitingastað
  • Íslenska
  • English
  • Login
Veitingastaðir.is
All Locations
Menu
  • Heim
  • Fréttir og tilboð
  • Allir matsölustaðir
  • Umsagnir
  • Skrá Veitingastað
  • Uppskriftir
  • Um NETIÐ og Veitingastadir.is 
Home » Umsagnir um staði » Shalimar

Shalimar

Published by [email protected] On 16/11/2011

Veitingastaðurinn er í Austurstræti í fremur gömlu og hlýlegu húsi á tveimur hæðum. Hægt er að velja rétt dagsins úr borði annaðhvort grænmetis- eða kjötrétt. Það er í boði í hádeginu og á kvöldin og verð á því er skaplegt eða um kr. 1400-1600 með hrísgrjónum og smá salati. Við völdum að sitja á efri hæðinni þaðan sem útsýni yfir götuna er skemmtilegt og pöntuðum að þessu sinni rétti af matseðli. Annars vegar kjúkling korma í kókos og rjómasósa sem bragðaðist afbragsvel og betur en maður er vanur að jafnaði af þessum rétti á indverskum stöðum, þar með talið dýrari stöðum. Fiskrétturinn sem við völdum var fiskur Punjabi með engifer og hvítlauk. Hann var einnig sérlgega góður. Verð á aðalréttum er svona frá um það bil 2,000 krónum en kjúklinga- aðrir kjöt- og fiskréttir eru yfirleitt um eða yfir 3,000 krónur. Verð er svo sem ekki lágt á þessum aðalréttum en gæðin voru góð. Biðin var hinsvegar talsvert löng ólíkt réttum dagsins sem eru tilbúnir fjlótt. Ferskleikinn og gæðin á þessum réttum voru hinsvegar mun meiri enda verð hærra. Nan brauðin sem við fengum voru einnig mjög góð. Þjónustustúlkurnar voru tvær ungar systur brosmildar og vinalegar. Eina sem hefði mátt betur fara að þessu sinni var að músík var full hátt stillt og biðin var full löng eftir matnum en sem betur fer þess virði.

  • Share
Categories: Umsagnir um staði Tags: Shalimar
← PreviousNext →

Sign up for the mailing list!

  • Heim
  • Fréttir og tilboð
  • Allir matsölustaðir
  • Umsagnir
  • Skrá Veitingastað
  • Uppskriftir
  • Um NETIÐ og Veitingastadir.is 
  • Login

© 1996-2025 NETIÐ markaðs- og rekstrarráðgjöf | Persónuverndarstefna

Sign In

Forgot your password?

Forgot password

Inquiry for
Shalimar