Von mathús

Visited 6867 times, 4 Visits today

Strandgata 75, 220 Hafnarfjörður

http://vonmathus.is/

583 6000

View Location in Map

Lítið fjölskyldurekið mathús við höfnina í Hafnarfirði.

Hugmyndina að því að opna VON má helst rekja til brennandi áhuga og ástríðu þeirra Einars Hjaltasonar og Kristjönu Þuru Bergþórsdóttur á matargerð og rekstri veitingarhúsa, en staðsetningin, og eftirspurnin eftir fjölbreyttri og „local“ matarmenningu í Hafnarfirði, spiluðu einnig stóra rullu þegar ákveðið var láta þennan draum rætast og hefja framkvæmdir.

VON mathús leggur upp með árstíðarbundna íslenska matargerð og hráefnanotkun hverju sinni, bæði í mat og kokteilum.
Hugmyndin er að inni á VON ríki heimilisríkt og persónulegt andrúmsloft og að fagleg þjónusta verði samofin andrúmsloftinu, með þeirri niðurstöðu að öllum líði vel inni á staðnum.

Einar Hjaltason er margrómaður matreiðslumaður sem býr yfir mikilli reynslu úr eldhúsinu. Hann lærði og útskrifaðist á Grillinu, hótel Sögu og tók síðan þátt í opnun Sjávargrillsins, en þar var hann vaktstjóri. Árið 2012 tók hann á brott til London þar sem hann kom að opnun á nýjum „fine dining“ veitingarstað að nafni Dabbous, en staðurinn hlaut Michelin stjörnu aðeins átta mánuðum eftir opnun. Þegar heim var komið tók hann að sér að vera yfirmatreiðslumaður á veitingastaðnum KOL, á Skólavörðustíg þar sem hann hætti nýverið störfum til þess að einbeita sér að opnun veitingahússins VON. Kristjana Þura, annar rekstraraðilinn, er fædd og uppalin í Hafnarfirði og hefur einning mikla reynslu af veitingarstörfum, en undanfarin tíu ár hefur hún sótt störf í veitinga-og hótelgeiranum.

[CRF_Form id='1']

2.000-3.500 kr., Undir 2.000 kr.,

1

45

Related Listings

Holtið Kitchen bar

897 5064

Langanesvegur 16, 680 Þórshöfn

Rúmgóður veitingastaðurinn sem býður upp á fjölbreyttan matseðil með áherslu á nýjan fisk og lambakjöt frá svæðinu. Einnig steikur, pastarétti, salöt, heimabakað brauð, ferskt grænmeti og gómsæta… Read more…

Tagged In Bar,Barnamatseðill,Brúðkaup,fiskistaður,Fjölskyldustaður,Gisting,Hádegi,Hamborgarar,Hlaðborð,Ís,Íslenskur,Jólahlaðborð,Kjúklingaréttir,Matur úr héraði,morgunmatur,Nautakjöt,Pizzur,salöt and Veislusalur

Caruso

562 7335

Austurstræti 22, 101 Reykjavík

Mán. - fim. kl. 11:30-22. Fös. kl. 11:30-23:30. Lau. kl. 12-23:30. Sun. kl. 17-22.

Ítalski veitingastaðurinn Caruso, er vinsæll og virtur veitingastaður í höfuðborginni, rekinn af sömu fjölskyldu í 16 ár.  Veitingastaðurinn er í sögulegri byggingu í miðbænum sem var upphaflega… Read more…

Tagged In Alþjóðlegur,Evrópskur,Fiskistaðir,Íslenskur,Ítalskur,Kjúklingaréttir,Lambakjöt,Nautakjöt,Pizzur,Salir,salöt,Súpur and Veislur

Add a Review

Your Rating for this listing: