Matarskammtur 4-5
Tími 40 mínútur
Erfiðleikastig Miðlungs
Hráefni
- 5 dl soðnar pastaskrúfur.
- 2 dl maís úr dós.
- 1 grillaður kjúklingur.
- 200 g léttsoðið spergilkál.
- 1/2 saxaður blaðlaukur (hvíti hlutinn).
- 1 dós kjúklingasúpa.
- 1 msk. tómatkraftur (tomatpuree).
- 1 pressaður hvítlauksgeiri.
- 1 dl rjómi.
- 150 g rifinn óðalsostur.
- 4 msk. parmesan.
Matreiðsla
- Smyrjið eldfast mót og setjið pastaskrúfurnar í mótið.
- Dreifið maísnum yfir, skerið kjúklingakjötið smátt og dreifið því yfir maísinn.
- Setjið spergilkálið ofan á og dreifið blaðlauknum yfir.
- Blandið saman súpunni, tómatkrafti, hvítlauk og rjóma og hellið yfir.
- Rífið ostinn, blandið parmesan saman við hann og stráið yfir réttinn.
- Bakið í 15-20 mínútur við 200 gráður.
- Berið fram með hvítlauksbrauði.
Facebook Comments