Matarskammtur 4
Tími 1 klst.
Erfiðleikastig Miðlungs
Hráefni
- 500 gr rækjur.
- 1 pakki hörpudiskur.
- 1 dós sveppir.
- 1-2 bréf Karrýhrísgrjón eða Golden rice.
- 3-4 msk mæjónes.
- 1 peli rjómi.
Matreiðsla
- Hrísgrjónin eru soðin eins og lýst er á pakkanum.
- Hörpudiskurinn skorinn í bita.
- Mæjónesið sett í skál og rækjunum, hörpudisknum, sveppunum og hrísgrjónunum blandað út í ásamt rjómanum.
- Allt sett í eldfast mót og ostur yfir.
- Bakið í ofni þar til osturinn hefur brúnast.
- Borið fram með ristuðu brauði.
- Athugið með hörpudiskinn að á honum er vöðvi sem þarf að taka af (hann er hvítari en hörpudiskurinn sjálfur og auðvelt að plokka hann af).
Facebook Comments