Matarskammtur 4-5
Tími 1 klst.
Erfiðleikastig Auðvelt
Hráefni
- 200 gr smjör.
- 200 gr suðusúkkulaði.
- 4 egg.
- 3 dl sykur.
- 1 dl hveiti.
- 100 gr herslihnetur hakkaðar.
Kremið
- Matreiðslurjómi.
- 2 stk. Mars súkkulaði.
- 1 plata af suðusúkkulaði.
Matreiðsla
- Smjör og suðusúkkulaði sett í örbylgjuofn og síðan kælt.
- Eggjunum og sykrinum er þeytt vel saman og síðan er blöndunni af smjörinu og suðusúkkulaðinu bætt út í.
- Loks er hveitinu og herslihnetunum bætt smátt og smátt út í.
- Fatið er smurt smjöri og hveiti og er kakan síðan bökuð við 180°C í 30-35 mín.
Kremið
- Kremið er brætt og hrært saman líkt og íssósa.
- Þegar kakan er fullbökuð er kreimið sett á kökuna á meðan hún er enn heit. Gott er að leyfa kökuni að sjúga dálítið af kreminu í sig.
Gott að bera kökuna fram með ís og jarðaberjum.
Facebook Comments