Um staðinn
Í einstöku umhverfi í náttúruperlunni Gróttu stendur gamalt timburhús sem byggt var fyrir aldamótin 1900. Í dag er þar að finna notalegan veitingastað, Ráðagerði veitingahús, sem er í eingöngu í um sjö mínútna akstursfjarlægð frá miðborg Reykjavíkur. Í boði er á fjölbreyttur matseðil sem dregur innblástur sinn frá einfaldleika ítalskrar matargerðar, úrval fjölbreyttra rétta eru í boði á sanngjörnu verði.
Útsýnið frá staðnum er einstakt og víðáttan ótrúleg í allar áttir svo sem að Esjunni, eldfjöllunum á Reykjanesskaganum, Snæfellsjökull auk Gróttuvitanum. Á veturna finnst varla betri staður á höfuðborgarsvæðinu með jafn lítilli ljósmengun og því er fullkomið að njóta norðurljósa beint eftir kvöldverð í Ráðagerði. Á sumrin er dásamlegt að setjast út á pall og njóta sólseturs undir fuglasöng en svæðið er þekkt fyrir fjölskrúðugt fuglalíf.
Upplýsingar
Já
3.000 kr - 4.500 kr,
Já
Já