Um staðinn
Vatnsholt er kjörinn staður fyrir árshátíðir, fundi og ráðstefnur (að ógleymdum óvissu- og hvataferðum, afmælisveislum, fermingum og ámóta mannfögnuði) enda óspart notaður sem slíkur á síðastliðnum árum, með ánægjulegum árangri.
Veitingasalirnir eru í nýuppgerðri hlöðu og fjósi, sem rúma allt að 300 manns. Um er að ræða þrjú aðskilin rými, en tvö þeirra bjóða upp á að opnað sé á milli (hlöðu og fjóss) og rúma salirnir þá samanlagt um 220-230 manns. Þriðji salurinn er fyrrum hesthús, inn af bar í móttöku, og rúmar u.þ.b. 80 manns.
Í veislusölum eru til staðar skjávarpar, hljóðkerfi og þráðlaust internet.
Á undanförnum árum hafa ánægðir gestir í þúsundatal lokið lofsorði á Vatnsholt sem úrvals vettvang fyrir mannfagnaði af öllu tagi, þar sem fara saman veitingar og þjónustu í háum gæðaflokki, notalegt andrúmsloft og ekki síst einstök staðsetning.
Forsvarsmenn veitingstadir.is geta tekið undir þó lofsorð sem og að margt áhugavert er að skoða á svæðinu í kring í Flóanum meðal annars Urriðafoss í Þjórsárverum vatnsmesti foss landsins, einnig nálægt elsta rétt landsins, torfbæir og fleira.
Hikið ekki við að hafa samband til að fá frekari upplýsingar.
Myndband
Upplýsingar
Já
3.000 kr - 4.500 kr,
3
100 - 300
Nei
Já
Interesting!