Monkeys Food & Wine

Visited 6721 times, 1 Visits today

Klapparstígur 28-30, 101 Reykjavík

https://monkeys.is/

519 5350

Alla daga frá kl. 12 - 22.

View Location in Map

Monkeys er staðsettur við Klapparstíg í svokölluðum Hjartagarði. Gengið er inn í hlýlegt, litríkt og spennandi umhverfi þar sem gestir geta notið framandi matar.

Staðurinn er smáréttastaður með mikið úrval framandi rétta sem eru einkum undir áhrifum frá Perú og Japan. Mikil áhersla er á gott úrval léttvína í glasatali og þá sér í lagi freyðandi vín frá öllum heimshornum ásamt frábærum kokteilum.

Nikkei matreiðsla er heiti á matargerðinni sem ræður ríkjum á staðnum. Hún á uppruna sinn að rekja til seinni hluta 19. aldar þegar japanskir innflytjendur hófu að setjast að í Perú í töluverðum mæli. Þar blönduðust aldagamlar matreiðsluaðferðir frá Japan saman við fjölbreytta matarkistu Perú.  Nikkei matreiðsla sameinar það besta úr hvorri matargerð s.s. virðingu fyrir hráefninu og samsetningu framandi bragðtegunda. Þannig voru japanskir réttir tengdir bragði og eldunaraðferðum frumbyggja í Perú á aðdáunarverðan hátt. Þessi blanda felur í sér það besta úr glæsilegri og fíngerðri  matarmenningu Japana ásamt afburða fersku hráefni blandað kryddtöfrum frá Perú.

2.000-3.500 kr., Undir 2.000 kr.,

4

15 - 250

Related Listings

Hereford steikhús

511 3350

Laugavegi 53B, 101 Reykjavík

Elsta Steikhús borgarinnar sem býður  matargerðarsinfóníur með safaríkum steikum, freistandi villibráð, fersku sjávarfangi, yndislegum eftirréttum og gómsætum forréttum. Á Hereford Steakhouse er hver réttur smíðaður af ástríðu… Read more…

Tagged In Alþjóðlegur,Árshátíð,Bar,Barnamatseðill,Evrópskur,Fiskistaðir,Grillhús,Humar,Íslenskur,Jólahlaðborð,Kjúklingaréttir,Salat,Sjávarréttir,Steikhús,Súpur and Villibráð