
TILBOÐ á góðu stöðum í Reykjavík — Veitingastaðirnir eru taldir upp í stafrófsröð.
Við uppfærum fréttir og tilboð á forsíðu reglulega og hvetjum lesendur til að DEILA fréttinni fyrir vini og vandamenn :). Mörg tilboðin gilda sem 2f1, tveir fyrir einn. Þegar líða tekur á sumar og ferðamönnum fjölgar minnka oft afsláttartilboð. Vekjum athygli líka á frétt um nýjustu staðina i bænum sem hafa opna svo sem Anna Jóna og að auki gott hádegisverð á fjölda staða. :).
Á Facebook síðu okkar eru umfjallanir þar sem við skrifum um Veitingastaði og stundum um Ferðalög og Neytendamál. Fjöldi færslna er líka frá heimsóknum á landsbyggðina.
– Forréttabarinn, Mýrargötu
Þar er meðal annars boðið uppá vel úti látinn fjögurra rétta tilboð / veislur, frá kr. 6.450 til kr. 6.950 á mann. Gott virði fyrir peninginn er eitt einkennismerki staðarins.
Á mánudags- og þriðjudagskvöldum er oft í boði 2 fyrir 1 af klassískum forréttum (símatilboð).
Opið frá kl. 16 til 22 (eldhús en bar til kl. 23). Staðurinn er vinsæll fyrir góðan happy hour alla daga frá kl. 16-18.
– Centerhotel – Jörgensen Bar & Kitchen, við Hlemm. Tveir fyrir einn, og lifandi djass
Happy Hour alla daga frá 16-18, gott verð m.a. stór á aðeins kr. 700. Á Fimmtudögum frá kl. 16-20 hamingjustund og þá er líka frá kl. 18-20, lifandi djassmúsík og 20% afsláttur af barseðli. Enginn aðgangseyrir 🙂
Einnig er tveir fyrir einn með símatilboði í hádeginu mán til fimmtudags. Vítt til veggja þar og næg bílastæði.
– KOL, Skólavörðustíg, Tveir fyrir einn af afmælisseðli og hádegi.
Fimm rétta matsseðill er á tveir fyrir einn sunnudaga til fimmtudaga fyrir Facebook og Instagram vini staðarins. Fullt verð er 11.990.-
Líka í hádeginu er tveir fyrir einn mán til fös, af aðalréttum.
Veglegur Lúxus smárétta Brunch um helgar kr. 5,490, þ.m.t. lúxus vegan brunch.
– Íslenski Barinn, Ingólfsstræti – gott verð
Í hádeginu færðu þar fyrir aðeins kr. 2.950, súpu með brauði, rétt dagsins og kaffi.
Fiskur dagsins að kvöldi til kr. 3.150., sama verð fyrir Fisk og Franskar en góður Plokkfiskur er á aðeins 3.050, namm, namm.
Mjög íslenskur staður og vel úti látnir skammtar, biddu óhikað um að taka afganginn með þér heim!.
– Matarkjallarinn, Aðalstræti – afmælissseðill á tilboði
STAÐURINN opnaði 17. mars eftir flottar endurbætur með nýjum og spennandi matseðli.
Í tilefni 7 ára afmælis staðarins er núna frá 1. til 15. maí fjögurra rétta seðill á aðeins kr. 7.777 og afmæliskokteill á kr. 1.777.
Gott verð er í hádeginu á staðnum, sér í lagi ef tekið er mið af gæði matar og þjónustu t.d. fiskur dagsins á 2.990 kr.
Nautaribeye með bearnaise og frönskum á hádegistilboði á föstudögum kr. 3.890.-
Úrval af samsettum matseðlum þriggja til sex rétta.
– Monkeys, Hjartargarðinum, – Tveir fyrir einn og fleira
Tveir fyrir einn af Sushi og Steikar matseðli sunnudaga til miðvikudaga kr. 10.990 fullt verð, fyrir Facebook og Instagram vini staðarins.
Einnig í boði veganseðill á kr. 9.990 fullt verð. Sjá seðil og fleira nánar hér.
Þú getur séð myndir og nokkrar umfjöllanir frá okkur um Monkeys á Facebook síðu okkar.
Í hádeginu er einnig frá klukkan 12 til 14 er tveir fyrir einn mánudaga til föstudaga, af aðalréttum*.
Flottur brunch um helgar frá kr. 5,490 einnig botnlausar bubblur – sjá umfjöllun á Facebook.
ÚTI Á LANDI – Matur og gisting
Víða eru í boði góð tilboð fyrir mat og gistingu. Þar má fyrst nefna viðskiptavin okkar til fjölda ára,
Hótel Örk, Hveragerði – HVER veitingastaður.
Þar er boðið uppá Sveitasælu á ákveðnum dögum í rómantík sem er gisting fyrir tvo í superior herbergi, með morgunverðar hlaðborði og þriggja rétta kvöldverði á HVER veitingastað. Þar er val um rétti af matseðli, á kr. 45.900. Aukanótt á kr. 19.900.- (Tvöföld sveitasæla). Ýmis önnur tilboð í gangi.
Einnig fylgir með í tlboði:
-endurgjaldslaus aðgangur að stórri og góðri sundlaug,
-hvera gufubaði og tveimur góðum pottum,
-afþreyingar herbergi (borðtennis, pool borð, pílukasti, o.fl.!.).
—- Að ógleymdri þeirri afar góðu orku sem er í Hveragerði!.

Við hjá Veitingastadir.is, höfum oft gist á hótelinu og getum heilshugar mælt með því – og þessum afar góða þriggja rétta seðli, ekki síst þar sem þú getur valið á milli allra rétta á matseðli.
Rauða húsið á Eyrabakka, er opið frá 1. apríl mán til fös. frá kl. 17 til 21 og lau og sunnudaga frá kl. 12 til 21. Sjá nánar á Facebook síðu staðarins https://www.facebook.com/raudahusid820
Á Akureyri og í næsta nágrenni eru 25 staðir skráðir á síðuna okkar,– sjá lista HÉR:
Á FACEBOOK höfum við í gegnum tíðina skrifað um staði þar sem og aðrar fréttir og umfjallanir um ferðir út á land bæði í ár, sumar og haust Fréttir sem geta gefið þér hugmyndir um staði til að heimsækja að vetri sem að sumri til.
Sjá einnig frétt neðar á síðunni um Tilboð í hádeginu en þá er oft hægt að gera mjög “góð kaup”.
Ábyrgðarmaður og aðal skrifari Hákon Þór Sindrason, Viðskiptafræðingur – Rekstrarhagfræðingur – Ráðgjafi.
Framkvæmdastjóri NETID ráðgjöf og Veitingastadir.is