Nýir og nýlegir staðir:
Okt ’23 (* = skráðir á vefinn)
Nokkrir nýir staðir hafa opnað síðustu mánuði. Þar ber fremst að Skreið sem sérhæfir sig í tapas undir baskneskum. Einnig að Haraldur Ingi hjólastólaramp maður opnaði nýtt kaffihús, bar og kvikmyndahús á jarðhæð á Tryggvagötu 11 í í byrjun árs. Staðurinn heitir Anna Jóna í höfuðið á móður Haraldar sem lést í bílslysi þegar hann var aðeins ellefu ára gamall. Annar nýr í viðbót við fjölbreytta flóru borgarinnar er staðurinn OTO á Hverfisgötu þar sem áður var Yuzu, þar er áhersla á japanska og ítalska matreiðslu. Verðlauna matreiðslumaðurinn Sigurður Laufdal, sem hefur mikla reynslu frá stöðum innanlands og erlendis, er eigandi og yfirkokkur. Úti á Seltjarnarnesi opnaði veitingastaðurinn Ráðagerði í sögufrægu húsi. Boðið er uppá fjölbreyttan matseðill sem dregur innblástur frá einfaldleika ítalskrar matargerðar, hægt er að panta pizzur þar til að taka með.
Veitingastaðurinn Skreið opnaði í byrjun mars á Laugavegi 4. Þar svífur yfir vötnum eða pönnum spænskur andi og baskneskur matur er í aðahlutverki. Verð er skaplegt og opið er miðvikudags til laugardagskvölda. Fröken Reykjavík, sem leggur áherslu á norður evrópska matargerð en með local hráefni og opnaði í byrjun árs í Lækjargötu 12. Þar er líka myndarlegur bar. Í fyrra opnaði Nebraska fataverslun og veitingastaður, áherslan í veitingum er á mið-evrópska matargerð.
Staðir sem hafa opnað síðasta ár eða rúmlega það …
212 Bar and Bistro, opnaði í fyrra í Urriðaholti í Garðabæ, boðið er uppá alhliða rétti, hamborgara, fisk dagsins og fleira, staðurinn hefur lokað núna í október. Veitingastaðurinn Brut, Pósthússtræti, þar er áhersla á evrópska matreiðslu með smá tvisti og sjávarréttum er gert mjög hátt undir höfði. Opið er bæði í hádeginu og kvöldin. Sama þrenningin og stendur á bakvið vínstúkuna Tíu sopa rekur staðinn. Tres Locos* er í Hafnarstræti og opnaði síðasta haust, staðurinn er meðal annars í eigu Nuno og Bento sem eiga fjölda staða í miðbænum. Höfum heimsótt staðinn tvisvar annað skiptið var ekkert sérstakt einkum þjónustan en hitt skiptið áætt. Síðasta sumar opnaði einnig Akur á stækkuðu svæði Hafnartorgs við gömlu höfnina í Reykjavík, en er nú hluti af Mathöllinni. AKUR er fransk-norrænn veitingastaður og vínbar. Þá er kominn nýr ítalskur staður á Hverfisgötuna, Grazie Trattoria, þar sem pizzur og ítölsk matseld er í öndvegi og opið er bæði hádegi og kvöld. Vorið ’22 opnaði pizzastaðurinn Olifa – La Madre Pizza á Suðurlandsbraut þar sem áður var Eldsmiðjan.
Af öðrum stærri aðilum sem hafa opnað á síðustu tveimur árum , ber helst að nefna að Monkeys* (er í stórum markaðspakka hjá okkur), þar sem áður var Skelfiskmarkaðurinn og við hlið hans er kokteilbar. Japönskum matreiðsluhefðum er blandað saman á Monkeys við matarhefðir frá Perú. Reynslumiklir menn eru þar við stjórnvölinn, sem meðal annars hafa getið sér gott orð fyrir rekstur Kol og Kalda bar. Sjá myndir með færslu.
Í júní í fyrra, opnaði á nýju Centerhoteli úti við hinn vinsæla Granda, staðurinn Héðinn Kitchen and Bar. Þar höfum við reyndar bara prófað morgunmat sem lofaði mjög góðu. Rekstraðilar eru Viggó einn stofnenda Blackbox pizza og Elías sem m.a. rekur Gló veitingastaðina.
Staðir hættir m.a.:
Pizzustaðurinn Spaði hætti núna sumar 2022, einnig hefur Eldsmiðjan á Suðurlandsbraut sem var síðasta útibú þess staðar lokað , þar er kominn OLIFA – La Madre Pizza. Geysir Bistro sem var bæði á Laugavegi og Aðalstræti hefur lokað alveg sem og hið fornfræga Restaurant Reykjavík í sömu götu. Annar frægur Lækjarbrekka lokaði í fyrra en þar er komið Bakan pizzastaður, Humarhúsið í sömu húsalengju lokaði síðasta sumar. Corona veiran, skuldsetning o.fl., hefur leikið þessa og fleiri staði illa.
Á Facebook síðu okkar skrifum við um heimsóknir á staði og myndir. Meðal annars þá sem eru merktir með *, auk fleiri staða.