Nú segjum við frá 2 fyrir 1 á KOL, Monkeys og Jörgenssen, auk fleiri frétta og tilboða. Sjá nánar hér að neðan.
Á FACEBOOK skrifum við umfjallanir um Veitingastaði. Fréttir sem geta gefið þér hugmyndir um staði til að heimsækja.. Einnig skrifum við stundum um Neytendamál.
– Forréttabarinn, Mýrargötu
Þar er meðal annars boðið uppá vel úti látinn fjögurra rétta tilboð / veislur, frá kr. 6.950 til kr. 7.950 á mann. Gott virði fyrir peninginn sem er einmitt eitt einkennismerki Forréttabarsins.
Á mánudags- og þriðjudagskvöldum er oft í boði 2 fyrir 1 af klassískum forréttum (símatilboð).
Opið frá kl. 16 til 22 (eldhús en bar til kl. 23).
Staðurinn er vinsæll fyrir góðan happy hour alla daga frá kl. 16-18.
– Centerhotel – Jörgensen Bar & Kitchen, við Hlemm. Tveir fyrir einn, og lifandi djass
Happy Hour alla daga frá 16-18, gott verð m.a. stór á aðeins kr. 700. Á Fimmtudögum frá kl. 16-20 hamingjustund og þá er líka frá kl. 18-20, lifandi djassmúsík og 20% afsláttur af barseðli. Enginn aðgangseyrir :).
Einnig er tveir fyrir einn með símatilboði í hádeginu mán til fimmtudags. Við hjá Veitingastadir.is förum reglulega og getum heilshugar mælt með því. Vítt til veggja þar og næg bílastæði. Sjá upplýsingar um hádegisverð þar og á fleiri stöðum hér.
– KOL, Skólavörðustíg 40 – Fimm rétta seðill og hádegi tveir fyrir einn
Fimm rétta Apríl matseðill með girnilegum og fjölbreyttum réttum sjá hér
Matseðillinn er í boði á 2f1 tilboði sunnudaga til fimmtudaga frá kl 17:30-22.oo.
Tveir fyrir einn Í hádeginu frá klukkan 12 til 14 mánudaga til föstudaga af aðalréttum :).
Veglegur Lúxus smárétta Brunch um helgar kr. 6.490, þ.m.t. lúxus vegan brunch.
Einnig úrval af flottum kokteilum. Kol er tvímælalaust einn af bestu veitingastöðum borgarinnar.
– Íslenski Barinn, Ingólfsstræti – gott verð
Í hádeginu færðu þar fyrir aðeins kr. 2.390, fisk dagsins, rétt dagsins eða hamborgara súpu með brauði, rétt dagsins og kaffi. Fiskur dagsins að kvöldi til kr. 3.350, sama verð fyrir Fisk og Franskar en góður Plokkfiskur er á aðeins 3.350, namm, namm. Mjög íslenskur staður og vel úti látnir skammtar, biddu óhikað um að taka afganginn með þér heim!.
– Monkeys, Hjartargarðinum, – Tveir fyrir einn MASI dagar og fleira fyrir samfélagsmiðla vini
2f1 af fimm rétta seðli sem er settur saman í samstarfi við MASI vínframleiðanda og í boði út apríl, einnig af vegan aprílseðli. Gildir sunnudaga til fimmtudaga frá 17:30 til 22:00 í mars. Fullt verð er kr. 12.990 / 11.990 sjá seðil hér
Í hádeginu frá klukkan 12 til 14 er tveir fyrir einn tilboð mánudaga til föstudaga af aðalréttum. Flottur brunch um helgar kl. 12 – 16, frá kr. 5,490 einnig botnlausar bubblur – sjá umfjöllun á Facebook. Þú getur séð myndir og nokkrar umfjöllanir frá okkur um Monkeys á Facebook síðu okkar.
ÚTI Á LANDI – Matur og gisting
Víða eru í boði góð tilboð fyrir mat og gistingu. Þar má fyrst nefna viðskiptavin okkar til fjölda ára,
Hótel Örk, Hveragerði – HVER veitingastaður.
Þar er boðið uppá Sveitasælu á ákveðnum dögum í rómantík – sem er gisting fyrir tvo í superior herbergi, með morgunverðar hlaðborði og þriggja rétta kvöldverði á HVER veitingastað. Þar er val um rétti af matseðli, á kr. 45.900. Aukanótt á kr. 19.900.- (Tvöföld sveitasæla). Ýmis önnur tilboð í gangi.
Tilboð í Janúar á Hver veitingastað 2 fyrir 1 af aðalréttum mán til fimmudaga kl. 18 til 20 með Nova tilboði.
Einnig fylgir með í tilboði:
-endurgjaldslaus aðgangur að stórri og góðri sundlaug,
-hvera gufubaði og tveimur góðum pottum,
-afþreyingar herbergi (borðtennis, pool borð, pílukasti, o.fl.!.).
— Að ógleymdri þeirri afar góðu orku sem er í Hveragerði!.
Við hjá Veitingastadir.is, höfum oft gist á hótelinu og getum heilshugar mælt með því – og þessum afar góða þriggja rétta seðli, ekki síst þar sem þú getur valið á milli allra rétta á matseðli.
Rauða húsið á Eyrabakka, er opið frá 1. apríl mán til fös. frá kl. 17 til 21 og lau og sunnudaga frá kl. 12 til 21. Sjá nánar á Facebook síðu staðarins https://www.facebook.com/raudahusid820
Á Akureyri og í næsta nágrenni eru 25 staðir skráðir á síðuna okkar,– sjá lista HÉR:
Á FACEBOOK höfum við í gegnum tíðina skrifað um staði þar sem og aðrar fréttir og umfjallanir um ferðir út á land bæði í ár, sumar og haust Fréttir sem geta gefið þér hugmyndir um staði til að heimsækja að vetri sem að sumri til.
Sjá einnig frétt neðar á síðunni um Tilboð í hádeginu en þá er oft hægt að gera mjög “góð kaup”.
Ábyrgðarmaður og aðal skrifari Hákon Þór Sindrason, Viðskiptafræðingur – Rekstrarhagfræðingur – Ráðgjafi.
Framkvæmdastjóri NETID ráðgjöf og Veitingastadir.is