Perlan 3
  • Finna veitingastað
  • Póstlisti



Þátttakendur á póstlista eiga möguleika á því að vinna gjafabréf á veitingastaði o.fl.

Nafn:
Netfang:
Kyn:
Security:


Skrá  
Um veitingastadir.is

Vefsíðurnar veitingastadir.is og restaurants.is eru spennandi vefmiðlar sem fóru í loftið í ágúst 2006. Vefsíðurnar eru þær einu sem innihalda upplýsingar um nær alla veitingastaði á Íslandi og gera notendum kleift að leita á þægilegan hátt í þessum lista af veitingastöðum.

  • Veitingastadir.is er ætluð sem heildarlausn fyrir Íslendinga, bæði einstaklinga og fyrirtæki, í leit að góðum matsölustað.
  • Restaurants.is er ætluð ferðaskrifstofum, erlendum ferðamönnum og útlendingum búsettum á Íslandi í leit að matsölustað.

Síðurnar voru fyrst og fremst hannaðar með það að leiðarljósi að auðvelt og fljótlegt yrði að finna veitingastaði við hæfi hvers og eins. Þannig er auðvelt að leita og flokka leitarniðurstöður eftir tegund staðar, matargerð, staðsetningu, verði og ýmsum aukavalkostum eins og hvort mynd fylgi staðnum á síðunni. Auk þess er hægt að leita eftir stöðum sem bjóða uppá heimsendingu og “take-away”. Veitingastaðir sem að bjóða uppá matseðla á Internetinu eða eru með borðapöntun á netinu eru einnig merktir sérstaklega.

Á síðunum er opið álitskerfi þar sem notendur geta komið á framfæri áliti sínu á veitingastöðum byggðu á eigin reynslu. Þetta gerir öðrum notendum auðveldara að velja þá veitingastaði sem eru að fá góðar umsagnir frá notendum. Einnig er hægt að skoða ferskar uppskriftir á íslensku sem og á ensku, lesa umsagnir sérfræðinga og skoða myndir frá veitingastöðum svo lítið eitt sé nefnt.  Þeir sem skráðir eru á póstfangalista eiga þess kost að vinna gjafabréf á veitingastaði og fleira.

Skrá eða bæta við

skráningu á vefsíðurnar

Hönnun og forritun
Síðurnar voru hannaðar af Dacoda ehf. í samvinnu við NETIÐ, markaðs- og rekstrarráðgjöf. Vefumsjónakerfið ConMan 2.7 frá Dacoda heldur utan um síðurnar og var öll sérforritun einnig í höndum Dacoda.

Booking - Visit Visitors Guide 150