Ráðgjöf
NETIÐ sérhæfir sig í ráðgjöf á sviði markaðs-, rekstrar og tölvumála ásamt viðskiptaeiningunni MarkaðsNetinu innan ferðaþjónustu. Áhersla er lögð á fagmannleg vinnubrögð sem tengjast langtímastefnumótun viðkomandi fyrirtækis. Fyrirtækið leggur áherslu á að vinna fyrir fyrirtæki sem aðgreina sig á jákvæðan hátt frá keppinautum. Starfsmenn fyrirtækisins eiga að baki fjölbreytta reynslu og menntun innan stefnumótunar, stjórnunar, markaðsfræði, kennslu og tölvumála. NETIÐ gerði auk þess viðamikla rannsókn á ímynd Íslands og íslenskrar vöru og þjónustu erlendis. Miðlar NETSINS eru fimm talsins:
Visitor's Guide er alhliða ferðamannabók sem nýtur mikils trausts og vinsælda í gestamóttökum hótela, gistiheimila og upplýsingaþjónusta (sbr. kannanir). Bókin er góð landkynning og auglýsing bæði fyrir og eftir Íslandsferð og á meðan á dvöl á landinu stendur. Innihald Visitor's Guide er mjög fjölbreytt en auk greina, auglýsinga, afsláttarmiða og gagnlegra
upplýsinga er gott kort af Reykjavíkursvæðinu og Íslandskort í honum. Dreifing nær yfir alla hluta íslenskrar ferðaþjónustu:
- Töluverðu er dreift á innlendar og erlendar ferðaskrifstofur.
- Ferðaskrifstofan Islandia AB í Stokkhólmi er stærsti dreifingaraðili af erlendum ferðaskrifstofum.
- Visitor's Guide er einnig dreift og kynntur á ferðakaupstefnum og í heimsóknum á erlendar ferðaskrifstofur.
- Upplýsingaþjónustan í Leifsstöð, þannig er náð til ferðamanna um leið og þeir koma til landsins.
- Hótel, gistiheimili, upplýsingamiðstöðvar og söluskrifstofur Kynnisferða, en farið er á helstu dreifingarstaði einu sinni í mánuði vegna Visitor's Guide og upplýsingamappa.
- Dreifing er einnig úti á landi, t.a.m. hjá upplýsingamiðstöðinni á Seyðisferði til farþega Norrænu.
- Sendiráð erlendis, Útflutningsráð, til Varnarliðsins o.fl.
Nánari upplýsingar um Visitor's Guide má finna á vefsíðu bókarinnar.
Upplýsingamappan er á 6 tungumálum og innheldur upplýsingar um fjölda fyrirtækja í ferðaþjónustu, svo sem verslanir, veitingastaði og fyrirtæki á sviði menningarmála. Upplýsingamöppuna má finna á öllum hótelum og flestum gistiheimilum á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Öll fyrirtæki í Visitor's Guide ferðamannabókinni og upplýsingamöpunni eru skráð á vefsíðu Visitor's Guide, www.visitorsguide.is. Vefsíðan inniheldur auk þess greinar um Ísland, ýmis kort, umsagnir um fyrirtæki, gagnlegar upplýsingar um Ísland og margt fleira. Síðan er ætluð erlendum ferðamönnum, útlendingum búsettum á Íslandi, hótelum og gistiheimilum og upplýsingamiðstöðum. Sjá, www.visitorsguide.is.
Sjá um www.veitingastadir.is.
Sjá www.restaurants.is.