Þátttakendur á póstlista eiga möguleika á því að vinna gjafabréf á veitingastaði o.fl.
Í Sjávarkjallaranum er í boði síbreytilegur matseðill í íslenskum "fusion" stíl með asískum áhrifum. Áhersla er lögð á sjávarrétti eins og þeir gerast bestir.
Á vínlistanum eru yfir 100 tegundir sem eru hugvitssamlega flokkaðar eftir þrúgum en ekki héruðum eins og algengt er. Innréttingarnar eru blanda af nútíma fágun og elsta steingólfi á Íslandi sem höggvið er í sömu steintegund og Alþingishúsið. Sjávarkjallarinn er í sömu byggingu og Upplýsingamiðstöð ferðamála.