Þátttakendur á póstlista eiga möguleika á því að vinna gjafabréf á veitingastaði o.fl.
Humarskipið færir þig nær sjávarlífinu en nokkurt annað veitingahús. Við bjóðum ykkur velkomin um borð í veitingaskipið okkar, þar sem áhersla er lögð á sjávarrétti, með humarinn í aðalahlutverki. Njótið hins litríka og fjölskrúða útsýnis um borð í Humarskipinu, á frábærum stað við gömlu höfnina í Reykjavík. Líflegt umhverfið skapar stemmningu sem er engu lík. Tökum að okkur hópa, veislur, árshátíðir o.fl.
Eldhúsið er opið um helgar frá kl 11:00-23:00 og á virkum dögum kl 11:00-22:00 Borðapantanir í síma 555-2040 eða í info@humarskipid.is
Veitingaskipið er í samstarfi við hvalaskoðunarfyrirtækið Hvalalíf ehf. Auk hvala- og fuglaskoðunar er boðið uppá sjóstangaveiði sem kryddar skemmtilega skoðunarferð. Margir ná þannig að „veiða í soðið“ eins og það kallast. Til þess að bæta enn um betur og bjóðum við upp á að elda veiðina um borð í Humarskipinu og er hún borin fram með kartöflum, hrísgrjónum, salati & sósu. Frábær endir á góðum degi.