Þátttakendur á póstlista eiga möguleika á því að vinna gjafabréf á veitingastaði o.fl.
Veitingastaður í Hafnarfirði, lifandi menning, skemmtun og góður matur. Fjörukráin er einstakur veitingastaður í Víkingaþorpinu í Hafnarfirði.
Matur er borinn fram af víkingum og valkyrjum í glæsilegum skála, skreyttum víkingamunum og myndum. Á matseðli eru ýmsir þjóðlegir réttir, t.a.m. íslensk kjötsúpa, lambakjöt, hrefnusteik og reyktur lundi. Fjörukráin skiptist í sjö sali, en í Víkingaþorpinu er einnig að finna Hótel Víking, fullbúið hótel með heitum potti og gufubaði í bakgarði. Þar er minjagripaverslun með úrval handverksmuna tengda víkingatímabilinu. Heimsókn á Fjörukrána er einstök upplifun sem sameinar menningu, skemmtun og góðan mat.