Perlan 3
  • Finna veitingastað
  • Póstlisti



Þátttakendur á póstlista eiga möguleika á því að vinna gjafabréf á veitingastaði o.fl.

Nafn:
Netfang:
Kyn:
Security:


Skrá  
Álit

Til þess að gefa stöðum álit þarf að velja staðinn og fara inn á "Gefa álit".
Flokka eftir veitingstöðum.
Flokka eftir dagsetningu.

30.7.2010 23:53
Indian Curry Hut
Ísabella Eyvarsdóttir
Indian Curry hut er rosalega kósý lítill veitingarstaður . fékk mjög góðann rétt að nafni kjúklingur 65. Afgreiðslustúlkan var líka mjög indæl og ég heyrði þegar hún var að afgreiða útlendinga sem töluðu lélega ensku og hún var mjög skilningsrík. Kokkurinn var líka mjög skemmtilegur og kom fram og spurði hvernig maturinn var.

 
30.7.2010 13:30
Vitabar
Sól
Bestur og ódýrustu borgararnir og svo klikka steikurnar ekki....
 
25.7.2010 19:03
Culiacan
Arnbjörg Heiðudóttir
Við fórum hjónin saman í hádeginu um daginn á staðinn sem er í skeifunni/faxafeni.
Ég átti í mestum erfiðleikum með að borða matinn þar sem hann var bara drulla af vökvanum úr salsamixinu fyrir utan það að eitthvað var greinilega ekki ferst því bragðið var beiskt og vont, þjónustan var hræðileg og þurfti ég að rífast við yfirmanninn á staðnum til að fá peninginn minn til baka. þennan stað mun ég ekki heimsækja aftur.
 
16.7.2010 3:15
Saffran
Jói
Stendur alltaf fyrir sínu, ódýrt og gott. Ég held að þessir sem gefa eina stjörnu hér fyrir neðan séu sárir útaf allt öðrum hlutum en matnum á staðnum og ættu að skammast sín fyrir svona barnaleg skrif.
 
12.7.2010 18:08
Strikið veitingastaður
Arnar
Þegar maður vill láta uppfylla allar sínar kröfur, þá fer maður á Strikið. Ég ákvað að verða við ósk konu minnar um að bjóða henni í hádegismat. Ég gæti hugsamlega étið þjónana á Strikinu, þeir eru svo frábærir og elskulegir. Maturinn frábær og veðrið hefur batnað, sakna reyndar sólarinnar. Hefði helst viljað borða úti. Gaf konunni loforð um að bjóða henni út á Strikið í næstu hitabylgju.
 
12.7.2010 2:25
Rub23
Arnar
Stundum skipuleggur maður með góðum fyrirvara hvar maður ætlar að borða. Svo hugsar maður um það í nokkra daga með smá tilhlökkun og þegar dagurinn kemur fer maður í sparifötin. Það heillar alltaf konuna mína þegar ég býð henni út. Síðasta laugardagskvöld átti ég von á góðu kvöldi en það var eyðilagt fyrir mér. Móttökurnar á staðnum voru arfa slakar og enginn gat útsýrt flókinn matseðil fyrir okkur þó það væri nánast ekki neitt að gera á staðnum. Kvöldið varð bara mjög ónotarlegt í alla staði og á endanum fórum við út mjög pirruð og verulega ósátt við matinn. Eina sem bjargaði kvöldinu var að við fórum út af þessum stað sem einu sinni var stolt bæjarins með Fredda kokk í framlínunni.
 
9.7.2010 1:42
Rikki Chan
Góður Matur á fínu verði og afgreiðslufólkið almennilegt
 
8.7.2010 23:06
Gallery Pizza
Frábær matur og góð þjónusta
 
7.7.2010 16:45
Shalimar
veikleiki minn !
þetta er svo frábær staður og maturinn einn sá besti !
vildi bara að verðið væri ekki svona hátt þá myndi maður mæta en oftar en ella.
 
7.7.2010 16:43
Tapas Bar
Jónína S.
flottur staður, skemmtilegt að koma þanngað alltaf, en þessi bið, bið eftir matseðil, bið eftir að panta, bið eftir mat, bið eftir þjónustu, hef alltaf tekið minn tíma í veitingahúsum ef maður fer undir 2 tímum, er það sóun á því að hafa farið út að borða yfir höfuð, en maður er ekki að bíða eftir á að fá að borða og vill einfaldega panta, eða fá vínið sitt eða láta hreinsa hjá sér í 2 tíma þá er eitthvað að.
vonandi takið þið þetta til greina svo maður geti haldið áfram að mæta með vinum og viðskiptavinum áfram.
2stjörnur þanngað til næst.
 
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 >>

Booking - Visit Visitors Guide 150